Nokkur atriði ber að hafa í huga við val á torfi og grastegundum. Ódýrustu fáanlegu túnþökurnar eru ekki endilega hagkvæmasta lausnin. Túnþökur af gömlum túnum eru ódýrar enda grófasta gerð fóðurgras ætluð fyrir heyuppskeru. Fóðurgras þekkist best á breiðum og flötum blöðum, gisinni rót og í sverðinum leynist gjarnan illgresi, túnfífill og fleira.
Fóðurgras, t.d. Vallarfox, Háliðagras og Snarrót, þolir ekki lága sláttuhæð. Grasflötin lítur illa út, verður gisin og safnar í sig mosa og illgresi meðan fóðurgrösin víkja fyrir lágvaxnari grösum sem eru innan um fóðurgrösin. Fóðurgrasflöt er vandamál svo lengi sem fóðurgrösin lifa - en rétt uppbyggð grasflöt er vandræðalaus um alla framtíð með réttri umhirðu.
Hér fyrir neðan er bæklingur sem útskýrir þetta nánar; þ.e. ólíkar grastegundir og eiginleikar þeirra, og gefur góð ráð fyrir undirbúning og þökulagningar.