TÚNÞÖKUVINNSLAN

Sími: 894 3000
Netfang:  torf@torf.is

Skrifstofa:

Túnþökuvinnslan ehf
Borgareyrar 
861 Hvolsvöllur 














TORF SÍÐAN 1959

Túnþökuvinnslan er fjölskyldufyrirtæki og nú er þriðja kynslóðin byrjuð að vinna við framleiðslu og sölu á torfi. Upphafið var að Jón H. Guðmundsson og Birgir Matthíasson hófu rekstur í eigin nafni árið 1959. Sonur Jóns, Guðmundur Þór, tók við rekstrinum 1973 og synir hans, Sævar Þór og Hrafn, komu að fyrirtækinu þegar þeir höfðu aldur til. Nú vinna tvær kynslóðir við reksturinn og fjórða kynslóðin bíður spennt eftir að fá að taka þátt.
Margt hefur breyst á þessum 50 árum. Allt torf er nú ræktað sérstaklega fyrir mismunandi þarfir sem er mikill munur frá því sem áður var. Hálfrar aldar reynsla tryggir gæði framleiðslunnar.